
Um okkur
Hvað er SFA?
Fólkið
Samgöngur fyrir alla, SFA, eru samtök fólks sem berst fyrir bættum samgöngum á höfuðborgarsvæðinu.
Samtökin eru til komin vegna vaxandi óánægju með framgang, fjármögnun og horfur í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu.
Hópurinn leggur áherslu á heilindi í baráttu sinni fyrir bættum samgöngum, gagnsæi og faglegum vinnubrögðum.
Engar þóknanir eru greiddar fyrir trúnaðarstörf á vegum hópsins og byggir starfsemi hans á sjálfboðaliðum.
Formaður samtakanna er Helga Guðrún Jónasdóttir.
Faghóp samtakanna skipa Þórarinn Hjaltason, samgönguverkfræðingur, Gestur Ólafsson, arkitekt og skipulagsfræðingur og Elías B. Elíasson, verkfræðingur.